Meðgöngumyndatökur

Að hýsa lítið líf og finna fyrir því dafna innra með sér er ólýsanleg tilfinning. Það er nefnilega heilmikið mál, að búa til manneskju, líkamleg og andleg líðan getur verið upp og ofan á megöngunni. Tilfinningar eins og eftirvænting og spenna í bland við óvissu og kvíða geta látið á sér kræla og allar eiga þær rétt á sér. Engu að síður eru meðgöngumyndir alltaf falleg minning sem er ómetanlegt að eiga. Þú og barnið þitt eruð eins náin og hugsast getur á meðgöngunni og barnshafandi kona er eitt af því allra fegursta í heiminum. Að muna eftir þessum tíma með myndum er líka svo magnað, sérstaklega þegar við byrjum að fylgjast með barninu vaxa og dafna eftir að það kemur í heiminn.

“Whatever it is, the way you tell your story online can make all the difference.”

— Quote Source